- 14 stk.
- 21.06.2011
Gengið var upp með Hrappstaðaánni á leið upp að stórhæð þar sem listaverkið Örnin er 100x100 metrar. Veður var ekki sem best gekk á með éljum en fossarnir eru fallegir í Hrappstaðaánni. Listaverkin þrjú sem Ferðafélag Akureyrar skipuleggur að skoða í þessari viku eru eftir Ástralska listamanninn Andrew Rogers þau eru unnin úr grjóti og hafa mismunandi form og útlit en mynda tákn og form sem endurspegla og eiga rætur sínar í náttúru, menningu og sögu þess staðar þar sem þau eru sett upp. Hugmynd listamannsins er sú að verkin verði jákvæð tákn um líf og endurnýjun. Listaverkið í Hlíðarfjalli hefur skýrskotun í merki Akureyrarbæjar og merkir Örninn. Akureyri varð fyrir valinu á Íslandi en alls er fyrirhugað að reisa verk í 12 löndum. Fararstjóri og myndasmiður Konráð Gunnarsson, texti Frímann Guðmundsson.