- 9 stk.
- 01.03.2009
FFA efndi til skíðaferðar á Vaðlaheiði þ. 1. mars 2009. Ekið var upp í Vaðlaheiði vestan megin, norður fyrir Geldingsá. Þaðan var gengið suður og upp á heiðina. Hópurinn var 1 klst. og 45 mín. upp að Skólavörðu. Síðan var haldið sömu leið til baka. Veður var ágætt, SV-gola og vægt frost. Þátttakendur voru alls 7. Fararstjóri Frímann Guðmundsson, myndasmiður Ingvar Teitsson.