- 32 stk.
- 15.08.2006
Vaskur hópur karla og kvenna gekk á Kerlingu undir fararstjórn Frímanns Guðmundssonar í forföllum Vignis Víkingssonar. Þau hrepptu fínasta veður og gott útsýni af toppnum þótt ekki liti það vel út fyrst um morguninn. Um helmingur hópsins gekk síðan sömu leið til baka en hinir gengu fjallgarðinn áfram norður af og nefndi Ludvig Kári þessa ferð 7 tinda gönguna.
Myndirnar tók Stefán Sigurðsson.