- 12 stk.
- 13.07.2024
Þann 15. júní stóð til að fara Laufásstrandartindana fjóra. Þar sem hret hafði komið óvenju seint þetta vorið þá var talsverður snjór í giljum á þessum slóðum. Hulda Jónsdóttir fararstjóri hafði kannað aðstæður áður og eftir þá ferð var ákveðið að fara aðeins á tvo eða þrjá tinda og geyma fjórða tindinn þar til síðar. Vaskur sjö manna hópur lagði því af stað með Huldu um morguninn og gekk allt vel og urður þau ekki fyrir vonbrigðum með útsýnið og ferðina. Myndinrar tók Hulda.