- 8 stk.
- 26.04.2014
Smíði Nýja Lamba er nú á lokastigi. Laugardaginn 26. apríl 2014 kom Kristján F. Júlíusson kranabílstjóri með tvo öfluga kranabíla og lyfti forstofunni frá meginskálanum. Forstofunni var síðan lokað að aftan svo að hægt verði að draga Nýja Lamba í tvennu lagi fram á Glerárdal eftir nokkra daga. Einnig var myndavél komið fyrir sunnan á meginskálanum svo að hægt sé að fylgjast með veðrinu á innsta hluta Glerárdals í gegnum tölvu í framtíðinni.