- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Ferðafélag Akureyrar auglýsir eftir áhugasömu fólki í stjórn og nefndir félagsins.
Í stjórn félagsins eru fimm aðalmenn og tveir varamenn.
Skálanefndir félagsins fara í vinnuferðir tvisvar á ári og þar er alltaf pláss fyrir fleira fólk. Aðrar nefndir eru ekki síður áhugaverðar eins og ferðanefnd sem sér um ferðaáætlun og gönguleikinn Þaulann. Nefnd um barna- og fjölskyldustarf og nefnd sem skipuleggur hreyfiverkefni eru í mikilli þróun. Félaga- og kynningarnefnd hefur það hlutverk að koma með nýjungar í starf FFA og kynna félagið út á við. Viðburða- gönguleiða- og ritnefnd hafa ákveðin hlutverk. Allar vilja þessar nefndir fá liðsauka.
Nánari upplýsingar veitir Hjali Jóhannesson, netfang hjalti.johannesson@gmail.com.
Kynntu þér starf FFA á heimasíðu félagsins, þar er margt að gerast. Við hlökkum til að heyra frá þér.