Tvær góðar ferðir framundan

1. maí. Súlur, 1213 m. Skíða- eða gönguferð 2 skór

3. maí. Draflastaðafjall, 734 m.  Skíða- eða gönguferð 2 skór
1. maí. Súlur, 1213 m. Skíða- eða gönguferð 2 skór
Árleg ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gangan hefst innan við öskuhaugana á Glerárdal og er gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra hæfi.
Fararstjóri: Kári Árnason.
Verð: Frítt fyrir alla.
Mæting og brottför frá öskuhaugum kl. 9.00

3. maí. Draflastaðafjall, 734 m.  Skíða- eða gönguferð 2 skór
Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði og upp á fjallið, notið útsýnis og vonandi góðs skíðafæris.
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.
Verð: Frítt / kr. 1.000
Brottför kl. 9.00

Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
miðvikudaginn 30. apríl milli kl. 17.30 -19.00
og föstudaginn 2. maí milli kl. 17.30 -19.00 eða í
tölvupósti ffa@ffa.is

Ferðanefnd   FFA