- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Sunnudaginn 24. apríl ætlar Ferðafélag Akureyrar að taka þátt í Stóra plokkdeginum í samstarfi við Akureyrarbæ. Félaginu hefur verið úthlutað svæðum til að hreinsa rusl á.
Mæting er við skrifstofu Ferðafélags Akureyrar að Strandgötu 23
kl. 10 sunnudaginn 24. apríl. Ruslapokar verða á staðnum svo og nokkrar plokktangir en fólk er hvatt til að taka með sér tangir ef það á og hanska. Að plokkun lokinni verður boðið upp á hressingu í húsnæði FFA í Strandgötu.
Gaman væri að sjá sem flesta, fjölskyldur sérstaklega hvattar til að mæta. FFA hefur verið með í verkefninu síðan 2019 og ávallt verið góð þátttaka, vonandi verður það eins að þessu sinni.
FFA hvetur alla til að tína rusl hvenær sem er á ferðum sínum um bæinn.