Norðausturhornið - ferðakynning! Opið hús 6. mars.

Norðausturhornið - ferðakynning! Opið hús 6. mars kl. 20 í húsnæði FFA Strandgötu 23 

Norðausturhornið er fyrir mörgum ókannað land.
Ferðafélagið Norðurslóð starfar á svæðinu frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð og hefur á áætlun sinni þrjár sumarleyfisferðir sem verða kynntar í máli og mörgum myndum.
- Raufarhöfn og nágrenni – nyrstu tangar landsins
- Náttúra og saga í Kelduhverfi
- Langanes – Fontur
Einnig verður sagt frá sumarleyfisferðum sem eru í þróun og annarri starfsemi félagsins.

Verið öll velkomin!