Næstaferð

25. – 27. maí. Hvannadalshnúkur á hvítasunnu, 2119 m.    4 skór

Fullbókað er í þessa ferð!


Hvannadalshnúkur er hæsti tindur landsins og takmark flestra fallgöngumanna. Þeir sem leggja á sig gönguna uppskera ríkulega fyrir erfiðið enda er umhverfið með því stórbrotnasta sem fyrirfinnst hér á landi. Ekið á einkabílum í Skaftafell föstudaginn 25. maí og gist í svefnpokagistingu í Svínafelli. Gengið á Hnúkinn í samvinnu við Ferðafélag Íslands laugardaginn 26. maí, en sunnudagurinn er til vara vegna veðurs. Hæðarhækkun er 2000 metrar og má gera ráð fyrir að gangan taki í heild um 10-15 klst. Ekið heim daginn eftir uppgöngu. Nauðsynlegur búnaður er: Skór með góðum sóla, mannbroddar, belti, ísöxi, sólgleraugu, sóláburður, skjólgóður fatnaður og nesti.

Farastjóri frá FÍ er Haraldur Örn Ólafsson
Verð: kr. 8.000/10.000 (Innifalið: Fararstjórn, grillveisla og svaladrykkir.)

Skoða heimasíðu Ferðafélag Íslands!