Næsta ferð: Bræðrafell

Næsta ferð félagsins er næstu helgi 7-9 ágúst í Bræðrafell. Ekið verður upp í Herðubreiðarlindir og þaðan gengið sama dag í Bræðrafell og gist þar...

7. – 9. ágúst. Bræðrafell – Hrúthálsar  
Ekið upp í Herðubreiðarlindir og þaðan gengið sama dag í Bræðrafell og gist þar. Næsta dag verður gígurinn í Kollóttudyngju skoðaður ásamt jarðmyndunum og jarðhita í Hrúthálsum. Aftur verður gist í Bræðrafelli og haldið heim á leið morguninn eftir.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 4.000 / kr. 5.200
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 8.00