Næsta ferð: Barna- og fjölskyldu-Páskaeggjapartý

Barna- og fjölskylduferð. Páskaeggjapartý

8. apríl kl. 17:00

Mæting við Kjarnakot í Kjarnaskógi.
Fararstjórn: Hjörvar Jóhannesson, Ragnheiður og Sunna Ragnarsdætur.

Njótum þess að koma saman í Kjarnaskógi þar sem alltaf er gott veður og skellum okkur í páskaeggjaleit!
Stutt og þægileg ferð sem hentar öllum aldurshópum. Mikilvægt er að mæta klædd eftir veðri, mögulega með eitthvað að drekka en í lok ævintýrsins er óvæntur glaðningur fyrir alla þátttakendur.
Ætlast er til að einhver fullorðinn komi með börnunum.
Gert er ráð fyrir að ferðin taki u.þ.b. 2 klst. Þátttaka ókeypis.

skráning í ferð