- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Kaldbakur / Svínárhnjúkur
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Baldvin Stefánsson.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið til Grenivíkur og á bílastæði skammt utan Grenjár. Gengið eftir stikaðri leið upp á Kaldbak, 1173 m. Þá er genginn fjallshryggurinn út á Útburðarskálarhnjúk, 1172 m. og þaðan hryggirnir út á Eiríksskarðskoll, 1040 m. og Svínárhnjúk, 1058 m. Hægt er að ganga út á Þernu, 1060 m. ef tími er til áður en gengið er niður að Svínárnesi og þaðan í bílana. Vegalengd 18 km. Gönguhækkun um 1400 m. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og tveggja metra fjarlægð, gæta hreinlætis og hafa handspritt meðferðis. Ekki verður sameinast í bíla í þessari ferð.