- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Látraströnd – létt sólstöðuganga
Brottför kl. 22 frá Finnastöðum.
Fararstjóri: Björn Ingólfsson.
Frí ferð.
Vegalengd fram og til baka er 7 – 8 km og því tilvalin fjölskylduferð.
Gengið verður frá Finnastöðum að Svínárnesi með leiðsögn eftir þægilegri jeppaslóð. Hækkun mjög lítil. Heimkoma ræðst af veðri, skyggni og stemmningu. Fólk er hvatt til að taka með sér nesti.
Aðeins verður farið ef veður og skyggni er gott.
Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur á hverjum tíma, gæta hreinlætis, hafa handspritt meðferðis og taka tillit til ferðafélaga nú þegar tveggja metra reglan er valkvæð.