- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Minnum á ferðina sem hefst á laugardaginn og hvetjum ykkur til að koma með og upplifa öræfin í þessari einstöku ferð inn á Norðurhálendi Íslands:
Bræðrafell – Askja Myndir
28.-31. Júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 31.400/19.500. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Bílar þátttakenda verða ferjaðir af landvörðum frá Herðubreiðarlindum upp í Dreka.
1.d. Ekið í Herðubreiðarlindir og eftir kaffihressingu er gengið um fremur greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar, 18 km.
2.d. Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafellið skoðað. Gist í Bræðrafelli.
3.d. Gengið frá Bæðrafelli í Drekagil, 18 km. Gist í Dreka.
4. d. Gengið frá Dreka yfir Dyngjufjöll að Öskju. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka í Dreka þar sem bílarnir bíða. Ekið heim um kvöldið.
Munið að skrá ykkur