- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Minnum á fjórðu og síðustu lýðheilsugönguna í dag, miðvikudaginn 26. september, gömlu Eyjafjarðarbrýrnar að austanverðu. Lagt af stað kl. 18 frá skrifstofu FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Ólafur Kjartansson
Í september verður lagt upp með göngur á miðvikudögum undir kjörorðinu „Lifum og njótum“. Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mín. Tilgangurinn með verkefninu er sem fyrr að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Við leggjum áherslu á sömu þemu og í fyrra, þ.e. náttúru, vellíðan, sögu og vináttu. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar hér.