Ferðir ársins 2023 verða kynntar í máli og myndum þann 30. mars kl. 20 í Verkmenntaskólanum á Akureyri (gengið inn að vestan).
Auk þess:
- Sérstakar barna- og fjölskylduferðir verða kynntar.
- Fjögur hreyfiverkefni verða kynnt, þau hefjast í apríl og maí.
- Söguferðir/raðganga.
- Gestir kvöldsins verða Frímann Guðmundsson og Konráð Gunnarsson, þeir sýna myndir frá skemmtilegum ferðum sem þeir hafa farið í saman.
- Kaffihlé. Nokkrar verslanir verða með kynningu á vörum sínum.
Aðgangur ókeypis.