Þaulinn 2024 með Ferðafélagi Akureyrar - Verðlaunaafhending 26. september

Þaulinn 2024 með Ferðafélagi Akureyrar - Amtsbókasafnið

Gönguleiknum Þaulanum hjá Ferðafélagi Akureyrar lauk 20. september.

Fimmtudaginn 26. september verður dregið úr réttum lausnum í kaffiteríunni á Amtsbókasafninu og hefst viðburðinn kl. 17.

Öll börn sem tóku þátt í leiknum fá viðurkenningarskjal og þau sem luku leiknum eiga von um vinning ef þeirra nöfn verða dregin út.

Fullorðnir sem skiluðuð inn þátttökublöðum eiga einnig von á vinningi ef þeirra nöfn verða dregin út.

Gaman væri að sjá sem flesta við þetta tækifæri, bæði fullorðna og börn. Boðið verður upp á kaffi og djús.

Ferðanefnd FFA