- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Barna- og fjölskylduferð: Fuglaskoðunarferð - Kristnestjörn
Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen
Í maí er vorið að vakna og rétti tíminn til að skoða fuglana okkar. Í fuglaskoðunarferðinni ætlum við að reyna að sjá og heyra eins margar tegundir og mögulegt er og kenna ykkur að þekkja sem flesta fugla, bæði staðfugla og farfugla. Tveir skrýtnir og skemmtilegir fuglakallar ætla að leiðbeina okkur við skoðunina. Gott er að hafa með sér kíki og skriffæri svo þarf að klæða sig eftir veðri því það getur verið kalt. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst.
Þátttaka ókeypis.
ATH. Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.