- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Opið hús 6. mars kl. 20. Norðausturhornið - ferðakynning í húsnæði FFA, Strandgötu 23
Norðausturhornið er fyrir mörgum ókannað land.
Ferðafélagið Norðurslóð starfar á svæðinu frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð og hefur á áætlun sinni þrjár sumarleyfisferðir sem verða kynntar í máli og myndum.
- Raufarhöfn og nágrenni – nyrstu tangar landsins
- Náttúra og saga í Kelduhverfi
- Langanes – Fontur
Einnig verður sagt frá sumarleyfisferðum sem eru í þróun og annarri starfsemi Ferðafélagsins Norðurslóðar.
Kaffi og konfekt, spjall og spurningar
Fjölmennið meðan húsrúm leyfir. Allir velkomnir
Viðburðarnefnd