Opið hús 6. febrúar kl: 20 ,, Á fjöllum er klukkan ekki neitt''

Opið hús 6. febrúar kl. 20 - ,,Á fjöllum er klukkan ekki neitt"
 
Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20 í húsnæði FFA við Strandgötu 23.
„Ég var ekki búin að vera lengi í Drekagili þegar mér fór að standa á sama um jafn mikið lítilræði og tímasetningu. Engu skipti hvaða dagur var, og því síður hvað klukkan sló. Klukkan var eitthvað og það var dagur á hverjum degi.“

Rakel Hinriksdóttir, blaðamaður Akureyri.net, skáld og listakona segir frá dvöl sinni sem skálavörður í Drekagili við Öskju síðasta sumar. Pistlar hennar, Drekadagbókin, sem hún birti á Akureyri.net vöktu athygli, en þar er sagt frá upplifun hennar af lífinu á fjöllum, í bland við hugleiðingar um tíma og tilveru, náttúruna og manninn.
 

Kaffi á könnunni, spjall og spurningar

Fjölmennið meðan húsrúm leyfir. Allir velkomnir

Viðburðarnefnd