- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Skálar
- Myndir
Kaldbakur í Eyjafirði: Skíða- eða gönguferð
Ferðinni er aflýst
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Bóthildur Sveinsdóttir og Bernard Gerritsma
Þann 20. apríl 2023 könnuðu fararstjórar skíðafærið á Kaldbak sem var gott. Síðan þá hefur haldist kalt og því er gert ráð fyrir að skíðafærið sé gott.
Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Fjallið er talið vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á fjallið er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönskum landmælingamönnum 1914.
Vegalengd alls 12-13 km. Gönguhækkun 1140 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.
Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.