Ferðakynning FFA - ferðaáætlun 2024 kynnt í máli og myndum

Ferðakynning FFA 2024

Ferðaáætlun FFA 2024 verður kynnt í heild sinni í máli og myndum þann 4. apríl kl. 20:00 í VMA. Barna- og fjölskylduferðir verða einnig kynntar auk hreyfiverkefna sumarsins.

Gestur kvöldsins verður Ragnhildur Jónsdóttir. Erindi hennar heitir "Aconcagua 7000m - hvers vegna?" Þar segir hún frá ferð sinni á hæsta tind Suður-Ameríku og hæðaraðlögun í þremur heimsálfum.

Útivistarverslanirnar Fjallakofinn, Sportver og Útisport verða með kynningu á sínum vörum.

Kynningin er í VMA og hefst kl. 20:00, gengið inn að vestan.