- 16 pcs.
- 25.04.2015
20150425 Kaldbakur
Lagt var af stað á tveim bílum frá Akureyri til Grenivíkur. Dökkur bakki var til norðurs en líkur voru á að birti. Gengið var upp með Grenjánni i erfiðu færi snjórinn djúpur allt upp í klof og jafnvel lengra. Ekki hafði birt til heldur bætti stöðugt í snjókomuna og vindinn þegar upp kom. Skygnið var ekkert allt hvítt og eftir um þriggja km. göngu var snúið við. Góð útivist en ekki náðum við toppnum í þetta skipti. Fararstjórar Frímann Guðmundsson og Stefán Sigurðsson.