Opið hús hjá FFA: Bygging göngubrúar yfir Fremri-Lambá sumarið 2023

Bygging göngubrúar yfir Fremri-Lambá sumarið 2023

Opið hús hjá FFA í Strandgötu 23, fimmtudaginn 2. maí kl. 20:00

Ingvar Teitsson segir frá vinnu gönguleiðanefndar við byggingu nýju göngubrúarinnar yfir Fremri-Lambá á Glerárdal sumarið 2023 í máli og myndum. Á bak við þá vinnu liggur mikil og óeigingjörn sjálfboðaliðsvinna. Við hvetjum ykkur til að mæta, heyra um þetta framtak FFA og sjá myndir af byggingu hennar.

Hressing og spjall.

Öll velkomin.