Ferđafélag Akureyrar

Ferđafélag Akureyrar

Skálar Ferđafélags Akureyrar

11. október, 2008: Skálum FFA í Herðubreiðarlindum, Dreka og Laugafelli hefur nú verið læst fyrir veturinn.  Þeim sem vilja leigja afnot af skálunum er bent á að senda póst á ffa@ffa.is eða hafa samband við Fjólu Kristínu Helgadóttur, ritara stjórnar í  í heimasíma 462-3812 eftir kl. 20.

Botni
Botni GPS 65°16.180 - 17°04.100
Botni stendur um 650 m suð-suðaustan efstu upptaka Suðurár, byggður 1996. Gistirými fyrir 16 manns í kojum. Kynding með steinolíukabyssu. Vatn má fá úr vatnsaugum við tjarnir suðvestan skálans eða úr upptakalindum Suðurár. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Gönguleið frá Dyngjufelli að skálanum (20-22 km) og þaðan um Suðurárbotna að Svartárkoti (15-16 km).


Bræðrafell
Bræðrafell GPS 65°11.310 - 16°32.290
Bræðrafell stendur suðaustur frá samnefndu felli, við suðurrætur Kollóttudyngju. Skálinn var byggður 1976-77. Frá uppgöngunni á Herðubreið er stikuð leið, um 9-10 km, vestur að skálanum. Frá Bræðrafelli er stikuð leið suður í Dreka. Gistirými fyrir 12 manns. Í skálanum er kolaeldavél. Ekkert vatnsból.



Dreki GPS 65°02.520 - 16°35.720   gsm-sími: 8225190 nmt:8532541 Tetra: 6410040
Dreki er við Drekagil í Dyngjufjöllum, byggður 1968-69. Frá skálanum má aka til austurs í Herðubreiðarlindar og Kverkfjöll eða til suðurs á Gæsavatnaleið. Gistirými fyrir 60 manns. Í skálanum er olíukabyssa. Gæsla yfir ferðamannatímann í samvinnu við Náttúruvernd Ríkisins. Tjaldsvæði hjá skálanum. Gönguleiðir frá Dreka að Dyngjufelli og Bræðrafelli.

Dyngjufell
Dyngjufell GPS 65°07.480 - 16°55.280
Dyngjufell í Dyngjufjalladal, norðvestan undir Dyngjufjöllum, var byggt 1993. Skálinn er 3,7 km í suðvestur frá Lokatindi. Gisting fyrir 16 manns í kojum. Kynding með steinolíukabyssu. Vatn fæst oft úr læk í grennd við skálann. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Gönguleið frá Dreka um Öskju og Jónsskarð að skálanum og þaðan í Suðurárbotna.

Lambi, Glerárdal

Lambi GPS 65°34.880 - 18°17.770
Lambi stendur í Glerárdal suðvestan Akureyrar, byggður 1975. Frá vegi að skálanum er stikuð gönguleið, 10-11 km. Gistirými fyrir 6 manns. Olíukabyssa og áhöld eru í skálanum. Lækur skammt sunnan skálans. Fjölbreyttar gönguleiðir frá skálanum um fjöll og dali á Glerárdalssvæðinu.

Laugafell
Laugafell GPS 65°01.630 - 18°19.950    gsm-sími: 8225192 mnt:8549302 tetra: 6410042
Laugafell var byggt á árunum 1948-50. Skálinn stendur 20 km suður af botni Eyjafjarðardals og um 15 km norðaustur frá Hofsjökli. Upphitun með laugarvatni allt árið. Áhöld og eldunartæki. Gæsla frá FFA yfir sumarið. Gistirými: skáli FFA: 15 manns; svefnloft snyrtihúss: 20 manns. Tjaldsvæði hjá skálanum. Sundlaug og upphitað snyrtihús. Frá Laugafelli liggja slóðir til Eyjafjarðar, Skagafjarðar, Bárðardals og suður Sprengisand.

Þorsteinsskáli
Þorsteinsskáli GPS 65°11.560 - 16°13.390    gsm-sími: 8225191 nmt:8424357 tetra:6410041
Þorsteinsskáli er í Herðubreiðarlindum, byggður 1958-60. Gistirými fyrir 30 manns. Í eldhúsi eru áhöld, gashella og olíuketill tengdur við miðstöð. Gæsla frá júní til ágústloka í samvinnu við Náttúruvernd Ríkisins. Góð snyrtiaðstaða með sturtu. Gott tjaldsvæði hjá skálanum

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning