Ferðafélag Akureyrar

Ferðafélag Akureyrar

Ferðaáætlun 2010

Ferðaáætlun 2010


JANÚAR

1. janúar.  Nýársganga   
Farið út í óvissuna til að fagna nýju ári.
Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.ffa.is
Verð: Frítt.
Brottför frá FFA kl. 11.00

FEBRÚAR

4. febrúar. Ferðakynning 2010
Ferðir ársins kynntar í máli og myndum á sal Brekkuskóla kl. 20.00.
Roar Kvam, formaður ferðanefndar kynnir.
Ari Trausti Guðmundsson verður með erindi og myndasýningu er hann kallar „Bak við fjöllin“.
Kynning á útivistarvörum Sportvers og Skíðaþjónustunnar.
Aðgangseyrir kr. 1.000, innifalið er kaffi og meðlæti.

6. febrúar. Sigurðargil á Súluvegi - Hrafnagil. Skíðaferð  
Lagt verður af stað rétt vestan við afleggjarann í Fálkafell. Þaðan er haldið upp Sigurðargil og á Súlumýrar. Gengið suður Súlumýrarnar sem eru drjúgar. Síðan má segja að það verði ein salíbuna alla leið niður í Hrafnagil.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 10.00

13. – 14. febrúar. Þorraferð í Botna. Skíðaferð   
Ekið að Svartárkoti, gengið þaðan í Botna, skála FFA í Suðurárbotnum þar sem snæddur verður þorramatur um kvöldið. Gengið til baka næsta dag.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: kr. 4.200 / kr. 5.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 11.00

20. febrúar. Fram með bökkum Eyjafjarðarár. Skíðaferð  
Létt ferð fyrir alla sem langar að fara í gönguskíðaferð en hafa ekki áhuga fyrir að fara í bröttu brekkurnar. Upplögð fjölskylduferð.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 10.00

27. febrúar. Baugasel. Skíðaferð   
Baugasel er gamalt býli í Barkárdal, sem er hliðardalur úr Hörgárdal og fór í eyði 1965. Nú er þar uppgerður torfbær sem er skáli Ferðafélagsins „Hörgur“. Gangan þangað er fremur létt.
Fararstjóri: Anke Maria Steinke.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 10.00

MARS 

6. mars. Hlíðarfjall - ÞelamörkSkíðaferð   
Gengið frá Skíðastöðum út hlíðina. Síðan er þægilegt rennsli niður að Þelamerkurskóla. Farið þar í heita pottinn (ekki innifalið). Þetta er létt ferð við flestra hæfi.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 9.00

13. mars. Draflastaðafjall, 734 m. Skíðaferð   
Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði og upp á fjallið, notið útsýnis og genginn góður hringur á fjallinu ef skíðafæri er gott.
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 9.00

20. – 21. mars. Bergland. Skíðaferð      
Gengið frá Hólsgerði upp Vatnahjalla og í Bergland við Urðarvötn. Notið dvalarinnar um kvöldið  og gist. Á sunnudegi er gengið  að Urðarvötnum og niður Vatnahjalla að bænum Hólsgerði.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson
Verð: kr. 5.000 / kr. 5.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 9.00

27. mars. LambiSkíðaferð   
Njótið útiveru og dásemda útivistarsvæðis Akureyringa. Í góðu færi er þetta frekar létt ferð.
Fararstjóri: Anke María Steinke.
Verð: kr. 1.900 / kr. 2.400
Innifalið: Fararstjórn, aðstöðugjald.
Brottför frá FFA kl. 9.00

APRÍL

3. apríl. Fljótsheiði - Garðsnúpur. Skíðaferð  
Ekið austur þjóðveg 1 upp á Fljótsheiði austan við Goðafoss. Þar fer hópurinn úr bílunum hjá malargryfju á háheiðinni og gengur norðvestur á bungu (285 m y. sjó) þar stutt norðan við og síðan norður háheiðina, á Skollahnjúk (235 m y. sjó). Þaðan er gengið norður á enda Garðsnúps og farið þar austur af núpnum og í bíl. Vegalengd ca 19,5 km.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 9.00

10. apríl. Hvassafellsfjall, Hestur, 1207 m. Gönguferð   
Gengið er upp norðurhrygg fjallsins frá Miklagarði. Til að byrja með er gengið eftir móum og melum, en við tekur langur og skemmtilegur hryggur sem nær alla leið á fjallstoppinn. Af Hesti er mikið útsýni út Eyjafjörð, um sveitina og til nærliggjandi fjalla.
Fararstjóri: Fríðfinnur Gísli Skúlason.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 9.00

16. - 18. apríl. Svartárkot - Botni - Heilagsdalur -GarðurSkíðaferð  
Á föstudegi verður farið frá Akureyri og ekið í Svartárkot og gengið þaðan í Botna og gist þar. Á laugardegi verður gengið úr Botna, um Botnakofa, austur við suðurenda Bláfjallshala og norður með Bláfjalli að austan í skála FFH á Heilagsdal og gist þar. Á sunnudegi er svo gengið norður úr Heilagsdal og niður í Garð við Mývatn.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: kr. 12.000 / kr. 13.900
Innifalið: Fararstjórn, gisting, akstur.
Brottför frá FFA kl. 17.00

24. – 25. apríl. Klaustur – KísilvegurSkíðaferð   
Ekið að Klaustri á Mývatnsöræfum austan Námaskarðs. Gengið norður að Hlíðarhaga. Eftir góða hvíld verður haldið áfram að Þeistareykjum og gist þar. Næsta dag er gengið að Kísilveginum. Þetta er stórkostleg gönguleið og frábært útivistarsvæði sem svíkur engan.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 4.200 / kr. 5.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 7.30

MAÍ

1. maí. Súlur, 1213 m. Skíða- eða gönguferð  
Árleg ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gangan hefst við réttina á Glerárdal og er gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra hæfi.
Fararstjóri: Kári Árnason.
Verð: Frítt.
Mæting og brottför við bílastæðið á Glerárdal kl. 9.00

2. maí. Ólafsfjörður Skíða- eða gönguferð  
Farin verður skíða- eða gönguferð í Ólafsfirði.
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 9.00

6. maí. Opið hús á vegum ferðanefndar.
Ferðakynning í húsnæði FFA, Strandgötu 23, Akureyri kl. 20.00. Ferðir sumarsins verða kynntar í máli og myndum.
Kynnir: Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar.
Frítt inn meðan húsrúm leyfir. Kaffi og meðlæti í boði félagsins.

8. - 9. maí. Flateyjardalur. Skíðaferð  
Á mótum Dalsmynnis og Fnjóskadals fellur áin Árbugsá til Fnjóskár. Þar við bæinn Þverá hefst gangan úr Fnjóskadal og út á Flateyjardalsheiði að Heiðarhúsum og gist þar. Upplifðu hamingjuna í þögn og kyrrð Flateyjardalsheiðar.
Fararstjóri: Valur Magnússon.
Verð: kr. 4.200 / kr. 5.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 9.00

15. maí. Fuglaskoðunarferð  
Árleg fuglaskoðunarferð FFA þar sem fuglalífið við Eyjafjörð verður skoðað með kunnáttumanni.
Fararstjórar: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 9.00

21. – 23. maí. Hvannadalshnúkur á hvítasunnu2119 m.     
Hvannadalshnúkur er hæsti tindur landsins og takmark flestra fjallgöngumanna. Þeir sem leggja á sig gönguna uppskera ríkulega fyrir erfiðið enda er umhverfið með því stórbrotnasta sem fyrirfinnst hér á landi.Ekið á einkabílum í Skaftafell föstudaginn 21. maí og gist í svefnpokagistingu í Svínafelli. Gengið á Hnúkinn í samvinnu við Ferðafélag Íslands laugardaginn 22. maí, en sunnudagurinn er til vara vegna veðurs. Hæðarhækkun er 2000 metrar og má gera ráð fyrir að gangan taki í heild um 10-15 kl.st. Ekið heim daginn eftir uppgöngu. Nauðsynlegur búnaður er: Skór með góðum sóla, mannbroddar, belti, ísöxi, sólgleraugu, sóláburður, skjólgóður fatnaður og nesti.
Undirbúningsfundur verður haldinn á Akureyri mánudaginn 17. maí kl. 20.00 í húsnæði FFA.
Vegna mikillar þátttöku undanfarin ár er nauðsynlegt að skrá sig í þessa ferð fyrir 1. apríl 2010.
Fararstjóri frá FÍ er Haraldur Örn Ólafsson.
Verð: kr. 12.000 / kr. 15.000
Innifalið: Fararstjórn, grillveisla og svaladrykkir.
Brottför auglýst síðar.

22. maí. Reistarárskarð – Flár, 1000 m. Skíðaferð   
Ekið á einkabílum að Freyjulundi við Reistará og gengið þaðan upp norðan ár. Þegar komið er upp í skarðið er stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins, þar sem gott útsýni er yfir Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið áfram suður eftir fjallinu uns haldið er til baka.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 9.00

29. maí. Kaldbakur, 1173 m. Skíða- eða gönguferð  
Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór varða hlaðinn af dönsku herforingjastjórninni árið 1914.
Fararstjóri: Vignir Víkingsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 9.00

JÚNÍ

5. júní. Melrakkasletta - núpar og tangar   
Rauðinúpur: Ekið er um Kópasker austur að býlinu Núpskötlu. Gengið er þaðan eftir malarkambi upp brekkuna á núpinn og að vitanum. Þaðan liggur leiðin að gígnum og síðan sömu leið til baka að bænum.
Rifstangi: Áfram er ekið austur þar til komið er að götuslóða og honum fylgt í átt að Rifi. Gengið er eftir malarkambi að eyðibýlinu Rifi og út á Rifstanga.
Hraunhafnartangi: Næst er ekið að bílastæði við Hraunhafnartanga og gengið þaðan út að vitanum, þar sem hægt er að fylgjast með brimöldum norðuríshafsins. Áður en haldið er heimleiðis njótum við kvöldsólarinnar á Sléttunni ef veður leyfir.
Fararstjóri:Grétar Grímsson
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

7. – 11. júní. Gönguvika  -   
Stuttar tveggja til þriggja klukkustunda kvöldgöngur við flestra hæfi.
Mánudaginn 7. Reyká í Eyjafirði 
Þriðjudaginn 8. Fossá í Hörgárdal 
Miðvikudaginn 9. Torfugil 
Fimmtudaginn 10. Þverárgil 
Föstudaginn 11. Stóralækjargil í Öxnadal  
Fararstjórar: Frímann Guðmundsson / Konráð Gunnarsson
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 19.00

12. júní. Hólafjall   
Ekið á einkabílum að Þormóðsstöðum í Sölvadal. Þaðan er gengið upp hlíðina og á hrygg Hólafjalls þar sem sjá má ummerki um gamlan akveg inn á hálendið. Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn. Komið er til baka að Þormóðsstöðum.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00

13. júní. Fífilbrekkuhátíð að Hrauni   
Í samstarfi við Ferðafélagið Hörg verður boðið upp á göngu á Halllok undir leiðsögn eins okkar fróðustu manna um þetta svæði. Auk þess verða aðrir menningarviðburðir í tilefni dagsins.
Fararstjóri: Bjarni E. Guðleifsson.
Verð: Frítt.
Brottför frá FFA kl. 8.00

20. júní. Sumarsólstöður á Múlakollu, 970 m.   
Gangan hefst á gamla Múlaveginum ofan við Brimnes. Gengið norðan við ána upp á Múlakollu.
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 19.00

23. júní. Jónsmessunótt á Miðvíkurfjalli   
Gengið frá veginum efst í Víkurskarði á fjallið. Komið niður á sama stað. Af fjallinu blasir Eyjafjörðurinn við og fjöllin vestan hans. Þetta er þægileg ganga við flestra hæfi.
Fararstjóri: Roar Kvam.
Verð: Frítt
Brottför frá FFA kl. 21.00

26. - 27. júní. Grasárdalshnjúkur, Reykjanibba, 1302 m.   
Ekið er að Hvammi í Hjaltadal og gengið þaðan á Grasárdalshnjúk ytri, 1264 m og áfram þaðan á Reykjanibbu, 1302 m. Er mjög víðsýnt af þessum fjöllum. Gengið niður Grjótárdal að Reykjum og haldið að Hólum þar sem gist verður í tjöldum (kr. 700 á mann, ekki innifalið í verðinu). Á sunnudeginum er gengið á Hólabyrðu ofan Hólastaðar áður en ekið er heim.
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir.
Verð: kr. 2.500 / kr. 3.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00

27. júní. Lofthellir í Mývatnssveit 1.  
Ekið að Lúdentsborgum í Mývatnssveit og gengið þaðan að hellinum. Er hann í Ketildyngjuhrauni milli Hvannfells og Búrfells. Heildarlengd hellisins er um 370 metrar og er hann á fimm hæðum. Er enginn annar hellir hér á landi á svo mörgum hæðum. Ísmyndanir eru stærri og mikilfenglegri en í öðrum hraunhellum hér á landi. Nauðsynlegur búnaður er mannbroddar, ljós og hjálmur.
Fararstjóri: Haukur Ívarsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 10.00

JÚLÍ

3. júlí. Grjótárhnjúkur í Hörgárdal  
Ekið er að Staðarbakka og áfram vegslóða að Ásgerðarstaðaseli og þar meðfram túnum. Farið er yfir Hörgána á móts við Grjótárdal (hægt að fara á bíl yfir ána) og gengið fram dalinn. Farið er yfir Grjótána og upp á suðuröxl hnjúksins og síðan er gengið til norðurs út á Grjótárhnjúkinn. Mikið útsýni yfir Hörgárdalinn. 
Fararstjóri: Konráð Gunnarsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

4. júlí. Glerárdalur - Skjóldalur  
Gengið er frá enda Súluvegar við heimari Hlífá sem leið liggur eftir stikaðri leið inn að Lamba þar sem gott matarhlé verður. Eftir matinn verður haldið áfram upp Glerárdal yfir Þröskuld í Ytri-Króksdal og niður í Skjóldal alla leið að Ystagerði þar sem ferðin endar. 
Fararstjóri: Ingimar Eydal.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00
Ferðasaga

5. - 9. (11.) júlí. Ljúfir dagar á Ströndum  -   
Farþegar koma sér á eigin vegum til Norðurfjarðar en þar hefst ferðin með siglingu til Reykjafjarðar að morgni mánudagsins 5. júlí. Gist í húsi og gengið sem veður og geta leyfir, um núpa og nes til 9. júlí, en þá sækir báturinn okkur fyrripart dags og siglir með okkur til Norðurfjarðar.
Þeir sem vilja geta gengið á þrem dögum í Ófeigsfjörð og gist í tjaldi á leiðinni.
Fararstjóri: Ólafur Halldórsson.
Verð: kr. 35.000 / kr. 38.000
Innifalið: Fararstjórn, gisting, sigling.
Brottför auglýst síðar.

Ekið til Húsavíkur. Siglt með Norðursiglingu frá Húsavík út í Flatey. Náttúra og mannvirki eyjunnar skoðuð. Þegar á eyjuna er komið bjóða Norðursiglingarmenn upp á grillveislu á bryggjunni. Siglt til baka til Húsavíkur seinnipartinn.
Fararstjóri í Flatey: Ingvar Sveinbjörnsson.
Verð: kr. 12.300 / kr. 13.300
Innifalið: Fararstjórn, sigling, hvalaskoðun, léttar veitingar um borð og grill í eyjunni.
Brottför frá FFA kl. 8.00

11. júlí. Lofthellir í Mývatnssveit 2.  
Sjá lýsingu hér framar.
Fararstjóri: Haukur Ívarsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 10.00

16. – 20. júlí. Öskjuvegur 1. Sumarleyfisferð. Trússferð   
Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað, ekið með farangur á milli skála. Fullt fæði.
1. d.Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla.
2. d.Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, e.t.v. farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3. d.Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 19 – 20 km.
4. d.Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20 – 22 km.
5. d.Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15 – 16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng, farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Snæddur kvöldmatur á veitingastaðnum Seli á Skútustöðum (ekki innifalið í verðinu). Ekið til Akureyrar.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: kr. 60.000 / kr. 65.000
Innifalið: Fararstjórn, akstur, trúss, fullt fæði og gisting.
Skráningargjald kr. 5.000 greiðist við bókun.
Brottför frá FFA kl. 17.00

17. júlí. Látrastrandar-tindar, 16 tinda ferð +   
Mögnuð ferð sem reynir mjög á styrk og þor, eingöngu fyrir þaulvana fjallafara.
Ekið verður til Grenivíkur. Gengið verður hefðbundin leið upp á Kaldbak og svo áfram í norður eftir fjallshryggnum. Ekki er hægt að búast við því að komast í vatn uppi á fjöllunum þannig að gera verður ráð fyrir að bera talsvert mikið af vatni. Vonumst við til þess að vera uppi á Gjögurfjalli í kring um miðnætti og kominn niður að Látrum í kringum tvö um nóttina. Þar mun biða bátur og sigla með okkur til Grenivíkur.
Fararstjóri: Friðfinnur Skúli Gíslason.
Verð: Ákveðið síðar.
Innifalið: Fararstjórn, sigling.
Brottför frá FFA kl. 6.00

18. júlí. Meðfram Glerá   
Gengið meðfram Glerá, frá Heimari-Hlífá, við réttina, til ósa. Þetta er frábær og áhugaverð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem vaxa sjaldséðar jurtir.
Fararstjóri: Ingimar Eydal.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 10.00

24. júlí. Torfufell, 1244 m.   
Gangan á fjallið hefst við fremsta bæinn, Hólsgerði. Gengið er upp brekkurnar og stefnt norðan við Hólsgerðishnjúkinn þar til komið er á fjallshrygginn og er honum síðan fylgt upp á fellið. Torfufell ber yfir nágrannafjöllin og er víðsýnt inn yfir öræfin. Til baka er gengið um Lambárdrag niður til Villingadals.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

25. júlí. Kerling, 1538 m. Sjö tinda ferð     
Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi. Ekið að Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit, farið þaðan á fjallið. Þar verður ferðinni tvískipt, sumir fara sömu leið til baka, aðrir norður eftir tindum að Súlum og niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar.
Fararstjóri: Vignir Víkingsson
Verð: kr. 3.000 / kr. 3.500
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00

26. – 30. júlí. Öskjuvegur 2. Sumarleyfisferð. Trússferð   
Sjá lýsingu hér framar.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.

31. júlí. Blástakkur, 1379 m.   
Upphaf göngunnar er við Féeggsstaði í Barkárdal. Farið er yfir Barká á göngubrú og gengið fram Féeggsstaðadalinn þar til áin skiptist við Féegg. Er þá farið yfir í tunguna og gengið upp Féeggina þar til komið er upp úr dalnum í um 1200 m hæð. Er þá lagt á fjallið sem er 1379 m. Stórbrotið útsýni yfir fjallasalinn og til Kolbeinsdals, Skíðadals og Barkárdals. Gengið til baka um Barkárdal að Baugaseli.
Fararstjóri: Konráð Gunnarsson.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

ÁGÚST

7. – 9. ágúst. Herðubreið, 1682 m.   
Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið.Á föstudegi er ekið á einkabílum í Herðubreiðarlindir og gist þar í tjöldum eða skála. Gengið á þjóðarfjallið á laugardegi og heim á sunnudegi. Nauðsynlegur aukabúnaður er hjálmur.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: Gisting í húsi: kr. 5.500 / kr. 7.300
         Gisting í tjaldi: kr. 3.800 / kr. 4.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 16.00
13. – 15. ágúst. Jeppaferð   
Farin verður ferð um Austuröræfi.
Fararstjóri: Vignir Víkingsson.
Verð: kr. 6.400 / kr. 9.000
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 16.00

14. ágúst. Mælifellshnjúkur í Djúpadal, 1140 m.     
Gönguferðin hefst við vegarenda við bæinn Litla-Dal. Í fyrstu er farið meðfram Djúpadalsánni uns er vaðið yfir ofan við Strjúgsá. Áfram er haldið inn Þverdalinn. Í um 600 m hæð er stefnan tekin upp með læknum á Mælifellið og út á hnjúkinn þar sem útsýni er frábært. Til baka er farið inn eftir fellinu og á móts við botn Þverdals er sneitt niður í Hvassafellsdal og sem leið liggur niður dalinn, vaðið yfir Djúpadalsá og skoðað eyðibýlið Kambfell. Vaða þarf yfir Hagá á leiðinni heim að Litla-Dal.
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir.
Verð: kr. 3.000 / kr. 3.500
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00

15. ágúst. Uppsalahnjúkur, 1100 m.   
Gengið frá sumarhúsinu Seli upp brekkurnar að vörðunni nyrst á Hausnum. Þá er gengið inn eftir fjallinu um greiðfær holt og síðan upp á hnjúkinn. Útsýnið þaðan er mikið og fagurt yfir héraðið.
Fararstjóri: Roar Kvam
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

20. ágúst. Skersgnípa - Kaldbakur, 5 tinda ferð    
Ekið verður að Grenivík og áfram eftir vegaslóða að Steindyrum ef færi leyfir. Gengið verður upp hrygg sem liggur á milli Svínárhnjúks og Þernu og þaðan eftir fjallshryggnum upp á Þernu og Skersgnípu. Síðan áfram um Svínárhjúk og Kaldbak til baka til Grenivíkur.
Fararstjóri: Friðfinnur Skúli Gíslason.
Verð: kr. 3.000 / kr. 3.500
Brottför frá FFA kl. 7.00

21. ágúst. Hreppsendasúlur,1052 m.   
Haldið á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir stórkostlegt útsýni við til allra átta. Til baka er farið sömu leið. Þetta er frekar létt ganga við hæfi flestra.
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 8.00

28. - 29. ágúst. Tungnahryggsjökull   
Ekið er áleiðis að Baugaseli eða eins og færð leyfir. Gengið fram dalinn í átt að Hólamannaskarði. Þegar komið er gegnum skarðið er stefnt á Tungnahryggsskálann en hér fáum við okkur langþráðan kvöldmat og hvílumst. Næsta morgun er haldið af stað og gengið yfir jökulinn og í átt að botni Skíðadals og fer nú að halla undan fæti. Gengið er meðfram ánni að eyðibýlinu Sveinsstöðum (gangnamannahús) eða áfram að eyðibýlinu Krosshóli og að bílnum.
Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: kr. 7.200 / kr. 8.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting og akstur.
Brottför frá FFA kl. 8.00

29. ágúst. Bægisárdalur - Glerárdalur   
Ekið að bænum Syðri Bægisá í Öxnadal og gengið inn dalinn sem er um 10 km langur og gljúfrin og fossarnir skoðaðir í leiðinni. Gengið yfir jökulinn (og e.t.v. á Tröllahyrnu) niður í Glerárdalsbotn og að Lamba. Þaðan farið niður um Grenishóla yfir Lambá niður Bungur og heim að réttinni þar sem Súluvegurinn endar. Upplifun: Stórbrotið landslag, gljúfur, fossa, jökul, há fjöll, útsýni, vaða ár, vera til í kyrrð öræfanna. Hvað er hægt að fá meira út úr einni ferð.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 4.000 / kr. 4.500
Innifalið: Fararstjórn, akstur.
Brottför frá FFA kl. 8.00

SEPTEMBER

4. september. Jökulborg, Landafjall, 1420 m.   
Gangan hefst við Þverárrétt í Öxnadal. Gengið er inn mynni Þverárdals og stefnan sett fljótt í austur upp Lambárdal. Gengið er upp botn Lanbárdals upp skálina milli Kistufjalls og Jökulborgar og þaðan á toppinn. Af toppi Jökulborgar er mjög flott og mikið útsýni.
Fararstjóri: Fríðfinnur Gísli Skúlason.
Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000
Brottför frá FFA kl. 9.00

11. – 12. september. Haustlitaferð   
Ekið í Svartárkot. Gengið í Botna,skála FFA í Suðurárbotnum, gist þar og farið til baka næsta dag. Skoðaðir haustlitir svæðisins sem eru stórkostlegir.
Fararstjóri: Anke María Steinke.
Verð: kr. 4.200 / kr. 5.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 10.00

18. september. Óvissuferð   
Ferð á vegum ferðanefndar.
Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.ffa.is
Verð: Frítt.
Brottför frá FFA kl. 10.00

DESEMBER

4. - 5. desember. Aðventuferð, jeppaferð  -    
Farið er í  fótspor Fjalla-Bensa en ferð hans er lýst í Aðventu Gunnars Gunnarsonar. 
Á laugardaginn verður ekið austur á Mývatnsöræfi og komið við í Péturskirkju við nýja hraunið og þaðan að sæluhúsinu við Jökulsá gegnt Grímsstöðum á Fjöllum, sem frægt er fyrir draugagang. Síðan ekið suður að Miðfelli, en þar dvaldist Bensi í jarðhýsi í a.m.k. tvær nætur. Í lok laugardagsins verður farið í Herðubreiðarlindir og gist í Þorsteinsskála. 
Á sunnudaginn er ekið norður fjöll aftur og heim.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: kr. 4.000 / kr. 4.500
Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Brottför frá FFA kl. 8.00


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning