Flýtilyklar
Myndasafn
Söfn
-
Þorrablótsferð í Botna 13.-14. feb. 2010
FFA efndi til árlegrar þorrablótsferðar í Botna við Suðurárbotna helgina 13.-14. feb. 2010. Ekið var í Svartárkot og gengið þaðan upp með Suðurá í Botna. Snjólítið var og skíðin því skilin eftir heima. Hópurinn átti ágætt kvöld í Botna við söng, upplestur, leikflutning og stjörnuskoðun, að mat og drykk ógleymdum. Suðvestan gola var á laugardaginn og fram eftir morgni á sunnudeginum en snerist í norðanátt undir lok ferðarinnar. Þátttakendur voru alls 7, fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.10 Myndir
14.feb.2010 -
Sigurðargil á Súluvegi - Hrafnagil. Skíðaferð
Þessi ferð varð Hlífá Hranastaðir.Lagt var af stað upp með Heimari- Hlífá og gengið upp á Súlumýrar þar sem skíðin voru sett á. Þaðan var haldið upp á Súlumýrar. Gengið suður Súlumýrarnar sem eru drjúgar, var haldið hæð neðan við Súlurnar, til að finna snjó. Síðan var farið eftir snjólænum í áttina að Hranastöðum þar sem við enduðum. Ferðin gékk í alla staði vel enda sól og logn. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Myndasmiður: Randver Páll Gunnarsson17 Myndir
10.feb.2010 -
Unnið við skálavarðarhús f. Laugafell
Laugardaginn 6. feb. 2010 var unnið við að klæða húsið að utan með panel. Einnig var borin olía á klæðningu sem fer á innviði hússins. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.4 Myndir
7.feb.2010 -
Unnið v. skálavarðarhús f. Laugafell
Laugardaginn 23. jan. 2010 vann hópur manna við nýja húsið. Borin var olía á klæðningu fyrir innveggi og unnið við panel utan á húsinu. Þá var kjölur settur á þak hússins. Veður var frábært, sunnan gola og hláka.2 Myndir
24.jan.2010 -
Nýársdagsganga FFA 2010
Ferðafélag Akureyrar efndi til nýársdagsgöngu þ. 1. jan. 2010. Gengið var frá bílastæði neðan við Kjarnaskóg suður fyrir enda Akureyrarflugvallar og yfir gömlu brýrnar á Eyjafjarðará austur að þjóðveginum neðan við Kaupang. Síðan var gengið sömu leið til baka. Blíðskaparveður var, en hörkufrost, -18°C. Þátttakendur voru 10, fararstjóri: Grétar Grímsson, myndasmiður: Ingvar Teitsson.10 Myndir
1.jan.2010 -
Unnið við skálavarðarhús f. Laugafell
Nú í haust, 2009, er haldið áfram að smíða skálavarðarhús fyrir Laugafell (Þórunnarbúð). Laugardaginn 7. nóvember var þakjárnið sett á húsið. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.4 Myndir
8.nóv.2009 -
24 Myndir
3.nóv.2009 -
Þingmannavegur
Laugardaginn 5. september var genginn svokallaður Þingmannavegur yfir Vaðlaheiði, frá Hróarsstöðum í Fnjóskadal að þingstaðnum í Eyjafjarðarsveit. Myndasmiður og fararstjóri var Grétar Grimsson.23 Myndir
10.sep.2009 -
Ferð FFA á Herðubreið þ. 22.08.09
FFA efndi til ferðar á Herðubreið þ. 22. ágúst 2009. Gist var í Herðubreiðarlindum að kvöldi 21.08. og gengið á fjallið morguninn eftir. Nokkur snjór var í efri hluta fjallsins að morgninum. Frábært veður var og glæsilegt útsýni frá tindinum (1.682 m y. sjó). Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.19 Myndir
23.ágú.2009 -
Öskjuvegur II 27. - 31. júlí 09
11 manna hópur frá FFA ferðaðist á Öskjuveginum í mjög góðu stuði þrátt fyrir að veðurguðirnir voru ákveðnir í að vera okkur ekki hliðhollir. Fengum við öll sýnishorn af íslensku öræfaveðri, smá sól, þykk þoka, ausandi rigning, norðan steytingur, haglél og snjókoma. En ekkert beit á skap ferðalangana, frábær og jákvæður hópur sem alltaf var í góðu skapi. Fararstjóri og myndasmiður var Roar Kvam99 Myndir
19.ágú.2009 -
Glaumbæjarsel og Fosssel þ. 16.08.09
FFA efndi til gönguferðar meðfram Skjálfandafljóti frá Fljótsbakka að Vaði þ. 16.08.09. Skoðaðar voru tættur og rifjuð upp saga í Geldinganesi, Glaumbæjarseli og Fossseli. Þá skoðuðum við Fossselsskóg og Ullarfoss. Veður var gott, stillt og úrkomulaust og sólskin síðdegis. Þátttakendur voru 16, fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.23 Myndir
17.ágú.2009 -
Kerling - 7 Tindar
Laugardaginn 15. ágúst var gengið á Kerlingu. Eftir það skiptist hópurinn og sumir fóru niður aftur að Finnastöðum en aðrir héldu áfram fjallgarðinn í norður að Súlum. Ljósmyndari: Frímann Guðmundsson. Ef einhverjir eiga góðar myndir úr ferðinni, þá endilega kíkið við á Skrifstofu FFA.8 Myndir
15.ágú.2009 -
Jeppaferð 2009
Ekið var frá Akureyri á föstudegi að Dyngjufjöllum og gist í Dreka. Á laugardegi var ekið í Kverkfjöll og gist í Sigurðarskála. Á sunnudegi var ekið niður með Jökulsá á fjöllum að austan, Hvannalindir, Sænautasel og Möðrudal.123 Myndir
15.ágú.2009 -
Bræðrafell - Hrúthálsar
Gengið var frá Herðubreiðarlindum að Bræðrafelli á föstudegi. Á laugardegi var gengið frá Bræðrafelli á Kollóttudyngju og Hrúthálsa og austur fyrir Eggert aftur í Bræðrafell. Sunnudagurinn fór svo í að ganga aftur að Herðubreiðarlindum. Myndir tók Frímann Guðmundsson og Stefán Sigurðsson. Einnig má finna myndir úr ferðinni sem Skúli Júlíusson tók á þessari slóð: http://wildboys.123.is/album/default.aspx?aid=15574887 Myndir
8.ágú.2009 -
Látraströnd - Fjörður. 24-26 júli 2009
Dagana 24.-26. júlí 2009 var gengin Látraströndin að Látrum og gist þar. Daginn eftir var ferðinni svo haldið áfram inn í Keflavík og að Þönglabakka í Þorgeirsfirði. Þriðja daginn var svo gengið frá Þönglabakka að Gili í Hvalvatnsfirði. Ljósmyndir tóku: Sigurgeir Sigurðsson og Þórarinn Torfason.62 Myndir
25.júl.2009 -
Öskjuvegur FFA 17.-21. júlí 09.
FFA efndi til ferðar á Öskuveginn 17.-21. júlí 2009. Ekið var að Drekagili og gengið þaðan í Öskju í blíðskaparveðri morguninn eftir. Þ. 19. júlí var gengið yfir Jónsskarð í Dyngjufjalladal. Daginn eftir var gengið í Suðurárbotna. Síðasta daginn var gengið í frábæru veðri í Svartárkot. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.56 Myndir
24.júl.2009 -
Sólarfjall
Gengið var frá Litla-Árskógi upp Lækjardal á Sólarfjall (Krossahnjúk) í blíðskaparveðri. Í ferðinni voru 4 alsælir ferðalangar. Gengið var svo niður að eyðibýlinu Kleif í Þorvaldsdal og með Þorvaldsdalsá að Litla Árskógi aftur.37 Myndir
21.júl.2009 -
Krossastaðagil og Hlíðarfjall þ. 11.07.09.
Farin var gönguferð frá Vöglum á Þelamörk upp með Krossastaðagili á Litlahnjúk, Stórahnjúk og Hlíðarfjall þ. 11. júlí 2009. Gengið var suður af Mannshrygg og niður að Skíðastöðum. Veðrið var frábært, bjart og stillt. Þátttakendur voru alls 7, fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.22 Myndir
12.júl.2009 -
Kvöldganga að Skólavörðu þ. 10.07.09.
Farin var kvöldganga að Skólavörðu á Vaðlaheiði þ. 10.07.09. Lagt var af stað frá skrifstofu FFA kl. 19 og ekið að Veigastöðum. Gengin var stikaða leiðin sunnan Bæjarkletta upp að vörðunni. Veður var bjart og milt og frábært útsýni yfir Eyjafjörð og nágrenni. Síðan var gengið sömu leið til baka. Þátttakendur voru 26, fararstjóri og myndasmiður var Ingvar Teitsson.13 Myndir
12.júl.2009 -
Hlíðarfjall 9. júlí 2009
Rúmlega 50 manns gengu upp á brún Hlíðarfjalls á ýmsum aldri þann 9. júlí og var lagt af stað kl. 19.00. Gengið var upp með Fjarkanum og síðan slóð frá Stýtu og upp á brún. Blíðskapar veður var logn og kvöldsól. Einnig var gengið norður að vörðu og útsýnis og verðurblíðu notið. Fararstjóri var Frímann Guðmundsson.37 Myndir
9.júl.2009 -
Grímseyjarferð 4. júlí 2009
Farin var ferð til Grímseyjar sem tókst mjög vel. Flogið var frá Akureyri með Norlandair og Bjarni Gylfason sigldi með hópinn í kringum eyjuna að því loknu var matast á veitingastaðnum Kríunni. Að lokum var gengið um eyjuna og skoðað björg og fuglalíf. Vel heppnuð ferð í alla staði. Myndir tóku Konráð Gunnarsson og Ólafur Larsen.71 Myndir
4.júl.2009 -
74 Myndir
27.jún.2009 -
Vinnuferð í Lamba 19.-20. júní 2009
Farin var árleg vor-vinnuferð í skálann Lamba á Glerárdal helgina 19.-20. júní 2009. Skipt var um klæðningu innan á austurvegg skálans og hann málaður og þrifinn að utan sem innan. Skálinn er nú í góðu ásigkomulagi og gönguleiðin inn Glerárdal að austan (sunnan) um göngubrúna á Fremri-Lambá að verða þurr. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.6 Myndir
21.jún.2009 -
Múlakolla - Sumarsólstöðuferð
Ferðin á Múlakollu gekk mjög vel. Allir voru mættir á gamla múlaveginn fyrir ofan Brimnes í Ólafsfirði kl. 20:00. Alls voru þar um 30 manns, mjög góður hópur. Ferðin upp gekk vel og vorum við uppi kl. 23:30 í ágætis veðri og sólin sást við hafsbrún. Ferðin niður gekk líka vel og allir komnir í bílana fyrir klukkan tvö. Myndir tóku. Konráð Gunnarsson, Gunnar Halldórsson og Sigurgeir Haraldsson.66 Myndir
21.jún.2009 -
Derrisskarð
Gangan hófst við Hrafnagil þangað sem bíllinn fór. Sólskin var og hægviðri og tók gangan tæplega 8 klst. Þátttakendur voru 10. Fararstjóri var Grétar Grímsson.44 Myndir
20.jún.2009 -
Fífilbrekkuhátíð að Hrauni
Gengið var frá Hrauni að Halloki undir Leiðsögn Bjarna E. Guðleifssonar.45 Myndir
13.jún.2009 -
Syðri- og Ytri-Tunguá
Gengið var upp með gilinu við Syðri Tunguá í Hörgárdal og skoðað fossa. Gengið var svo niður með gilinu við Ytri Tunguá. Fararstjóri var Konráð Gunnarsson. Ljósmyndir tók Lilja Guðmundsdóttir og Konráð Gunnarsson.33 Myndir
11.jún.2009 -
Reyká í Eyjafirði
Gengið var upp með Reykjá í Eyjafirði. Mjög góð þátttaka var. Fararstjóri var Frímann Guðmundsson. Ljósmyndir tóku Frímann Guðmundsson og Maximilian.35 Myndir
10.jún.2009 -
Gilsárgil í Eyjafirði
Gengið var upp með Gilsárgili að sunnanverðu og 38 tóku þátt. Ljósmyndir tóku Lilja Guðmundsdóttir og Frímann Guðmundsson.37 Myndir
9.jún.2009 -
Stóralækjargil í Öxnadal
Sunnudagskvöldið 7. júní var gengið upp með Stóralækjargili í Öxnadal og það skoðað . Þátttaka var mjög góð en 28 tóku þátt fararstjóri var Konráð Gunnarsson. Ljósmyndir tóku Lilja Guðmundsdóttir og Konráð Gunnarsson.39 Myndir
7.jún.2009 -
Fjörurölt við Gásir
Þessi ferð var farin 6. júní 2009. Fararstjóri var Sverrir Thorstensen. Ljósmyndir á Maximilian.5 Myndir
6.jún.2009 -
Hvannadalshnjúkur hvítasunnu 2009
Gengið var á Hvannadalshnjúk með Ferðafélagi Íslands. Fararstjóri var Haraldur Örn Ólafsson. 80 tók þátt og þar af voru 9 að norðan.24 Myndir
31.maí.2009 -
Reistarárskarð - Flár
Ekið var að Freyjulundi við Reistará og gengið þaðan upp norðan ár. Veður var stillt en skýað. Hægt var að fara á skíðin þegar komið var vel upp í hlíðina. Alltaf þyngdi í lofti og þegar tekið var kaffistopp fór að slydda og hríða. Ekki var langt eftir að brún Þorvaldsdals, nú var skyggni orðið ekkert og skall á okkur sannkallað hrakveður slydduhríð og brátt urðu allir holdvotir, var þá snúið við hið bráðasta og rennt sér niður úr veðrinu. Myndasmiður var Frímann Guðmundsson og fararstjóri Grétar Grímsson.17 Myndir
25.maí.2009 -
Fuglaskoðunarferð 17. maí
Þann 17. maí var farin hin árlega fuglaskoðunarferð Ferðafélags Akureyrar undir öruggri fararstjórn hins geðþekka Raufarhafnarbúa Jóns Magnússonar. Sérlegur aðstoðarmaður hans var Sverrir Thorsteinsen. Ágæt þátttaka var í ferðina. Veður var ekki eins ákjósnalegt og að viðvaningar í fuglaskoðun hefðu haldið. En eins og fram kemur á meðfylgjandi myndum var glampandi sól. Samkvæmt því sem þeir félagar sögðu þá njóta litir fuglanna sín ekki eins vel við þessar aðstæður eins og þegar skýjað er. Eina fuglaskoðunarveðrið sem er verra en glampandi sól er rok og rigning. Alls sáust 18 tegundir fugla í ferðinni og rákumst við bæði á egg silfur- og sílamáfa. Allt að 27 tegundir fugla verpa í Krossanesborgum. Því miður var myndasmiðurinn ekki með vél sem hentar fuglaljósmyndum en lætur nægja að setja inn nokkrar myndir af þátttakendum og umhverfinu. Áhugaverð slóð um svæðið: http://www.ust.is/Frodleikur/Fridlystsvaedi/nr/275117 Myndir
17.maí.2009 -
Hvarfshnjúkur
16. maí. Hvarfshnjúkur í Svarfaðardal. 1036 m. Ekið var að bænum Hofsá í Svarfaðardal. Fararst. Konráð Gunnarsson.33 Myndir
14.maí.2009 -
Súlur 1. maí
Rúmlega tuttugu manns lögðu á fjallið, þrátt fyrir að skyggnið væri ekki gott. En kyrrt var og hið ágætasta útivistarveður. Fararstjóri var Kári Árnason.33 Myndir
10.maí.2009 -
Smíði skálavarðarhúss f. Laugafell þ. 25.04.09.
Á kosningadaginn, 25.04.09, var unnið við að klæða með timbri ofan á sperrurnar á þaki nýja skálavarðarhússins. Einnig var unnið á neðri hæð hússins, við að setja laska undir gólfklæðningu o.fl. Í lok dagsins mátti segja að komið væri þak á húsið. Myndasmiður: Ingvar Teitsson5 Myndir
25.apr.2009 -
Vinna við skálavarðarhús fyrir Laugafell þ. 23.04.09
Á sumardaginn fyrsta, 23.04.09, var unnið við samsetningu á sperrum á húsið. Sperrur voru reistar með aðstoð Stjána Júl., kranabílstjóra. Einnig var gengið frá sperrufestingum í hliðarveggi hússins. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.3 Myndir
23.apr.2009 -
Klaustur Þeistareykir Kísilvegur
Laugardaginn 18 apríl var ákveðið að fara í könnunarleiðangur á leið frá Hlíðarhaga við Eilífsvötn og alla leið til Þeistareykja með viðkomu í Litlavíti og Stóravíti. En fyrst þurfti að komast í Hlíðarhaga. Farið var á tveim bílum annar skilinn eftir á Kísilvegi á hinum var ekið langleiðina að Jökulsá á fjöllum eða að vegi sem liggur niður með Jökulsánni að vestan. Í þessari ferð voru Anke María Steinke, Vilhjálmur Agnarsson, Margrét Guðmundsdóttir og Frímann Guðmundsson sem var fararstjóri og myndasmiður. En látum myndirnar tala sínu máli.27 Myndir
20.apr.2009 -
Smíði skálavarðarhúss í Laugafell þ. 18.04.09
Smíði skálavarðarhúss fyrir Laugafell miðar vel áfram. Laugardaginn 18.04.09 var lokið við að setja loft yfir jarðhæð skálans og einnig voru stafnar reistir á enda hússins.7 Myndir
18.apr.2009 -
Kaldbakshnjúkur
Gengið var á Kaldbakshnjúk á Öxnadalsheiði í góðu veðri, síðan var gengið inn hnjúkinn og niður Kaldbaksdalinn til baka. Fararstjóri og myndasmiður var Konráð Gunnarsson.16 Myndir
6.apr.2009 -
Skíðaferð FFA á Háafell þ. 04.04.09
Ekið var frá Akureyri að Öxará í Þingeyjarsveit. Við lögðum á fjallið um kl. 10.10. Nægur snjór var en uppi á fjallinu var skel á snjónum og erfitt færi. Við komum upp á Háafell kl. 15.10. Háafell er 918 m y. sjó og hæsta bungan á fjallinu milli Bárðardals og Fnjóskadals. Þar var nærri logn, heiðríkt og afar fallegt útsýni í allar áttir. Við renndum okkur svo austur af fjallinu sömu leið og vorum komin niður í Öxará um kl. 18.10. Þátttakendur voru 9. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson11 Myndir
5.apr.2009 -
Baugasel
Farið var í Baugasel smá sárabót vegna þess að hætta varð við ferðina Klaustur Húsavík . Barkárdalur er hliðardalur úr Hörgárdal.Baugasel er gamalt býli sem fór í eyði 1965 en Ferðafélagið Hörgur, sem stofnað var í Baugaseli á Jónsmessu 1981, hefur unnið að lagfæringu gömlu bæjarhúsanna. Bærinn er torfbær með tveim timburburstum og er frambærinn óþiljaður með moldargólfi en baðstofan þiljuð í hólf og gólf. Fararsjóri og myndasmiður Frímann Guðmundsson15 Myndir
29.mar.2009 -
Smíði skálavarðarhúss f. Laugafell þ. 21.03.09.
Haldið var áfram að smíða skálavarðarhús f. Laugafell í suðvestan golu og blíðviðri þ. 21.03.09. Lokið var við að reisa grind útveggjanna fjögurra. Einnig var klæddur krossviður utan á tvo veggi. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.4 Myndir
21.mar.2009 -
Skíðastaðir - Þelamörk
Vegna slæmrar veðurspár var ákveðið að skíðaferðin frá Hlíðarfjalli að Þelamörk, sem fara átti á sunnudag 8. mars, væri farin, á laugardag 7. mars. Myndasmiðir Valur og Kristín og fararstjóri var Frímann Guðmundsson.15 Myndir
9.mar.2009 -
Smíði skálavarðarhúss fyrir Laugafell
Haldið var áfram að smíða skálavarðarhús fyrir Laugafell laugard. 07.03.09. Efnað var niður í grindur fyrir þrjá veggi hússins. Grindurnar voru síðan settar saman og reistar. Veður var sæmilegt framan af degi en eftir hádegið mokaði niður snjó.2 Myndir
8.mar.2009 -
Súlumýrar - Hrafnagil
Lagt var af stað rétt vestan við afleggjarann upp í Fálkafell og haldið þaðan upp á Súlumýrar. Gengið suður allar Súlumýrarnar sem eru nú ansi drjúgar. Síðan má segja að það hafi verið ein salíbuna alla leið niður í Hrafnagil. Veðurspáin hafði verið fremur leiðinleg en veðrið var mjög gott og batnaði eftir því sem á daginn leið en ferðin tók nú ekki nema tæpa fjóra tíma með stoppum.4 Myndir
3.mar.2009 -
Skíðaferð FFA á Vaðlaheiði þ. 01.03.09
FFA efndi til skíðaferðar á Vaðlaheiði þ. 1. mars 2009. Ekið var upp í Vaðlaheiði vestan megin, norður fyrir Geldingsá. Þaðan var gengið suður og upp á heiðina. Hópurinn var 1 klst. og 45 mín. upp að Skólavörðu. Síðan var haldið sömu leið til baka. Veður var ágætt, SV-gola og vægt frost. Þátttakendur voru alls 7. Fararstjóri Frímann Guðmundsson, myndasmiður Ingvar Teitsson.9 Myndir
1.mar.2009 -
Dreki 27.feb-1.mars
Vinnuferð í Dreka53 Myndir
1.mar.2009 -
Garðsárdalur 28. feb 2009
Við vorum 7 ferðafélagarnir sem fórum í Garðsárdalinn. Það var grámi í lofti og virtist ekki mikill snjór er við renndum í hlað í Garðsá. Við gengum sem leið lá upp skurð austan og ofan við veginn inn dalinn og vorum fljótlega komin í góðan snjó. Þá braust sólin í gegn og við gengum í logni og sól. Ferðin var mjög ánægjuleg. Valur Magnússon var leiðsögumaður en Kristín Björnsdóttir myndasmiður.16 Myndir
28.feb.2009 -
Skálavarðarhús í Laugafell
Laugardaginn 21. febrúar 2009 hófu félagar í FFA að smíða nýtt skálavarðarhús fyrir Laugafell. Stálbitar sem mynda undirstöðu hússins voru stilltir af. Þá var smíðuð timburgrind ofan á stálbitana en sú grind verður gólf nýja hússins. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.4 Myndir
22.feb.2009 -
Þorrablót FFA í Botna þ. 14.02.09.
Hin árlega þorrablótsferð FFA í Botna var farin helgina 14.-15. febrúar 2009. Ekið var í Svartárkot og gengið þaðan á skíðum í blíðskaparveðri upp með Suðurá. Hæg suðvestangola var og sólskin á laugardaginn, frost um 6°C. Við áttum skemmtilegt kvöld í Botna við snæðing, söng og upplestur. Í myrkrinu um kvöldið var farið út að horfa á stjörnur og norðurljós sem nutu sín vel þar sem engin útiljós trufluðu. Á sunnudagsmorguninn gengum við til baka í Svartárkot og vorum komin þar um eitt-leytið. Þá höfðum við suðaustangolu í bakið en verður var þurrt og hlýnandi. Þátttakendur voru alls 13. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.18 Myndir
16.feb.2009 -
Skíðaferð FFA í Lamba 07.02.09.
Lagt var af stað í fyrstu skíðaferð ársins í heiðríkju og stillu um kl. 10.30. Gengið var frá bílastæðinu við Heimari-Hlífá á Glerárdal. Við fylgdum stikuðu leiðinni fram í Lamba að mestu. Komið var fram í skálann eftir 3ja klst. göngu. Þar var logn, léttskýjað og 15 stiga frost. Eftir áningu í Lamba var haldið sömu leið til baka. Skíðafæri var gott og vorum við 1 klst. og 45 mínútur til baka að bílunum. Þátttakendur voru átta. Fararstjóri var Anke-Maria Steinke og myndasmiður Ingvar Teitsson.16 Myndir
8.feb.2009 -
Nýársdagsganga FFA 2009 í Vaðlareit
Ekið var frá skrifstofu FFA að bílastæðinu við Leiruveg syðst við Vaðlareit. Gengið var upp stíginn í Vaðlareit og síðan norður skóginn að grunninum eftir þjónustumiðstöðina á Húsabrekku. Síðan var haldið sömu leið til baka. Veður var mjög fallegt, logn, bjartvirði og 5 stiga frost. Gönguleiðin fram og til baka var um 4,5 km, gangan tók 90 mínútur. Þátttakendur voru 12, fararstjóri Grétar Grímsson, myndasmiður Ingvar Teitsson.9 Myndir
1.jan.2009 -
15 Myndir
9.nóv.2008 -
11 Myndir
28.okt.2008 -
Fleiri myndir frá afmælisgöngu á Herðubreið
Hjalti Jóhannesson bætti við nokkrum myndum sem hann og Fjóla kona hans tóku í ferðinni. Þarna má glöggt sjá að ýmis sýnishorn af veðri voru í boði þennan daginn. Ferðin gekk í alla staði vel og var einkar eftirminnileg. Voru aðstæður allar líklega betri en hjá þeim félögum sem fyrst gengu á fjallið réttum hundrað árum fyrr.10 Myndir
30.sep.2008 -
Haustlitaferð í Botna 20-21. september 2008
Haustlitaferð í Botna 20-21. september 2008. Ekið á einkabílum í Svartárkot í Bárðardal á laugardag. Þaðan gengið upp með Svartá og stoppað á Stóru-Flesju. Víða á leiðinni var stoppað til að skoða haustliti og áð í stórri laut sem gaf skjól fyrir vindinum. Með Sellandafjallið og Bláfellið á vinstri hönd var gengið í Gamla Botna þar sem við tókum af okkur bakpoka og skoðuðum gömlu rústirnar. Gengum síðan í Botna skála FFA í Suðurárbotnum eftir vegaslóða með svart hraunið til sitthvorrar handa. Gistum þar og átti hópurinn notalega kvöldstund saman við kertaljós og draugasögur. Á sunnudag var lagt af stað um níuleitið í hífandi roki og fimm stiga hita, en það hlýnaði þegar leið á daginn. Gengið var greitt heim á leið og var hópurinn komin í Svartárkot um eittleitið. Indæll lítill hópur sem á hrós skilið fyrir góða umgengni og hjálpsemi við að ganga frá í skálanum. Bjart var báða dagana og nutu haustlitirnir sín vel. Vil taka fram að myndast hefur smá tjörn rétt við skálann (Botna) þar sem hægt er að ná í neysluvatn. Skemmtilegir ferðafélagar og notaleg ferð í alla staði. Leiðsögumaður og myndasmiður Kristín Björnsdóttir.15 Myndir
24.sep.2008 -
Ferð FFA á Herðubreið þ. 23.08.08.
Ferðafélag Akureyrar efndi til gönguferðar á Herðubreið þ. 23. ágúst 2008. Ekið var á einkabílum í Herðubreiðarlindir kvöldið áður og gist í Þorsteinsskála. Að morgni 23.08. var ekið að uppgöngunni vestan Herðubreiðar og gengið á fjallið. Gangan upp tók 3 klst. og 15 mín. Á tindinum skiptust á skin og skúrir. Við sáum m.a. Kverkfjöll, Hofsjökul, Kerlingu v. Eyjafjörð, Kinnarfjöll, Smjörfjöll og Dyrfjöll. Alls voru 20 manns í þessum hópi FFA sem gekk á þjóðarfjallið. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.12 Myndir
24.ágú.2008 -
Kerling, Sjö tinda ferð
Gengið var frá Finnastöðum á hæsta fjall í byggð á Íslandi, Kerlingu í Eyjafirði 1536 m. Veður var skínandi gott sunnan andvari og léttskýjað. Gengið var upp Öxlina uppi Heimari Lambárbotna og þaðan upp á Kerlinguna. Þaðan skiptist hópurinn flestir fóru út hrygginn til Súlna, þ.e. Þríklakka, Bónda. Litakrumma, Stórakrumma, Syðrisúlur og Ytrisúlur.Fararstjórar: Frímann Guðmundsson og Vignir Víkingsson. Frímann tók myndirnar29 Myndir
19.ágú.2008 -
Reistarárskarð - Kálfskinn
Gengið var upp Reistarárskarð frá Freyjulundi gegnum skarðið og þaðan upp á Reistarárfjall. Veðrið var gott logn og hiti um 20 stig. Þegar leið á daginn fór mistur að hamla útsýninu. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. En látum myndirnar tala sínu máli sem Frímann tók.30 Myndir
19.ágú.2008 -
Kleifar - Hvanndalir - Héðinsfjörður
26 - 27 júlí 2007 Heimsókn í fyrrum afskestustu byggð við norður-atlandshaf. lagt var af stað frá Kelifum, gengt Ólafsfjarðarkaupstað þar sem fararstjórinn hefur komið sér upp fallegu húsi ásamt manni sínum, sem er óspart notað sumar sem vetur. Gengið var eftir góðri götu sem liggur meðfram fjallinu Arnfinni útí Fossdal. Sem er hömrum girtur dalur, forsmekkurinn á því sem koma skal. Eftir smá stopp í Fossdal var haldið á brattann, uppá Hvanndalabjarg. Þegar upp var komið fór fiðringur um magann, þegar horft var niður í Skötugjá. Enda erum við stödd á brún Hvanndalabjargs, hæsta standberg við sjó á Íslandi, hér er eins gott að fara varlega. Fararstjóri: Helga Guðnadóttir Frímann, Helga og Elín tóku myndirnar.55 Myndir
15.ágú.2008 -
Afmælisganga á Herðubreið þ. 13.08.08.
Þann 13. ágúst 2008 voru liðin 100 ár frá því að Dr. Hans Reck og Sigurður Sumarliðason gengu á Herðubreið, fyrstir manna. Ferðafélag Akureyrar og Ferðafélag Íslands efndu til gönguferðar á þjóðarfjallið þann dag í tilefni afmælisins. Ekið var að uppgöngunni vestan Herðubreiðar og gengið þaðan upp á tind á 3 klst. Á tindinum voru til skiptis sólskin og hríðarél. Nokkurt útsýni var til vesturs og norðurs. Ný kassi fyrir gestabók var settur á hátindinn. Í hópnum voru 18 manns, á öllum aldri. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson.14 Myndir
14.ágú.2008 -
Bláskógavegur
Þann 9. ágúst 2008 stóð FFA fyrir gönguferð á Bláskógaveg. Þetta er gömul þjóðleið frá Sæluhúsmúla á Reykjaheiði að Undirvegg í Kelduhverfi. Gengið var frá Rauðhól austan Sæluhúsmúla að Undirvegg, um 20 km. Veðrið var frábært, kyrrt og úrkomulaust en skýjað. Þátttakendur voru 13, fararstjóri Sigurgeir Sigurðsson, myndasmiður Ingvar Teitsson.14 Myndir
11.ágú.2008 -
Látraströnd 14. - 15. júní
Látraströnd. Sigling og gönguferð Ekið út á Grenivík. Siglt þaðan út að Látrum. Farin verður kvöldganga upp í Uxaskarð. Gist verður í húsi eða tjöldum. Gengið inn Látraströnd næsta dag. Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.68 Myndir
21.júl.2008 -
Grímubrekkur
Gengið var upp Grímubrekkur og upp á fjallið Einstakafjall. Síðan var haldið á Halldór og áfram á Ólaf og Barkarkollu. Þaðan var haldið fram á Hólshyrnu og niður Bæjarfjall og til Dalvíkur.17 Myndir
20.júl.2008 -
Kerahnjúkur
5. júlí. Kerahnjúkur, 1097 m. Ekið var sem leið liggur til Ólafsfjarðar. Komið var saman á planinu við Tjarnarborg og ekið þaðan stuttan spöl upp að fjallinu. Gengið var eftir troðningi fyrir kaldavatslögn meðfram hlíðinni í átt Bustarbrekkudal. Síðan var haldið á brattann.. Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Frímann Guðmundsson tók myndirnar.27 Myndir
11.júl.2008 -
Laufáshnjúkur
Þarfaleysisgangan á Laufáshnjúk. Björn Ingólfsson var leiðsögumaður og leiddi tæplega fjörtíu manna hóp frá FFA upp á Laufáshnjúk . Fararstjóri var Roar Kvam. Frímann Guðmundsson tók myndirnar23 Myndir
30.jún.2008 -
Gloppuhnjúkur 08
Farið var á Gloppuhnjúk í Skíðadal laugardaginn 24. maí 08. Konráð Gunnarsson var fararstjóri og Frímann Guðmundsson tók myndirnar22 Myndir
26.maí.2008 -
Flár 08
Skíðaferð á Fláa 17. maí 2008. Grétar Grímsson var fararstjóri og Frímann Guðmundsson tók myndirnar.12 Myndir
19.maí.2008 -
Fuglaskoðunarferð 08
Krossanesborgir 11. maí 2008. Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen voru leiðsögumenn og Frímann Guðmundsson tók myndirnar.7 Myndir
19.maí.2008 -
Flár maí 07
Frímann Guðmundsson og Gretar Grímson fóru í könnunarleiðangur upp á Flár sem er mikil slétta uppi á Möðruvallarfjalli. Lítill snjór hafði verið þetta árið en þarna var hann þótt komið væri fram undir júní. Gott að vita af því.13 Myndir
13.maí.2008 -
Botni-Heilagsdalur apríl 2008
Gengið var frá Svartárkoti á föstudagskvöldið upp með Suðurá og gist í Botna. Á laugardagsmorguninn var farið að upptökum Efstalækjar og gengið þaðan á skíðunum í beina stefnu á suðurenda Bláfjallshala, um 16 km. Þaðan var gengið norður með Bláfjalli að austan, um 9 km, og gist í skála FFH á Heilagsdal. Gangan á laugardaginn tók um 8 klst. Á sunnudaginn var gengið norður úr Heilagsdal, norður yfir Seljahjallagil og norðvestur yfir Garðsbruna að Garði við Mývatn. Logn og bjartvirði var alla helgina og gott skíðafæri. Fararstjóri og myndasmiður: Ingvar Teitsson25 Myndir
5.maí.2008 -
Aðalfundur FFA
Aðalfundur FFA var haldinn mánudaginn 31. mars 2008.10 Myndir
8.apr.2008 -
Þorvaldsdalur apríl 08
Skíðaferð á Þorvaldsdal. Farið var á Þorvaldsdal þ. 5. apríl 2008. Ekið var að Stærra-Árskógi og gengið þaðan suður dalinn. Skýjað var og norðvestan gola þegar lagt var af stað, en fljótlega lægði og gerði glampandi sól. Nægur snjór var en víða djúp lausamjöll. Fjallasýn var óviðjafnanleg allan daginn. Snjórinn entist því nær heim að túni í Fornhaga. Gangan tók tæpar 8 klst. og gekk í alla staði vel. Fararstjóri og myndasmiður var Ingvar Teitsson.19 Myndir
6.apr.2008 -
Glerárdalur mars 08
Á pálmasunnudag 16. mars 2008 var farið með brúarefni að Fremri-Lambá á Glerárdal og einnig var farið með krossvið og steinolíu í Lamba. Farið var á snjóbíl sem björgunarsveitin Súlur á. Einnig voru vaskir snjósleðamenn með í för til að finna bestu leiðina. Farið var um Fálkafell og fram Bungur vestan undir Súlum fram að Fremri-Lambá. Þaðan var farið yfir gil Fremri-Lambár að skálanum Lamba. Heim var haldið sömu leið. Veðrið var eins og best verður á kosið, bjart og svalt. Myndasmiður: Ingvar Teitsson.9 Myndir
4.apr.2008 -
Strýta
Myndir úr ferð á Strýtu 15. mars 2008. Lagt var af stað með hálfum huga í þessa ferð og sumir hættu við, því þoka var og allt rann saman í eina hvíta veröld. En það átti eftir að breytast eins og myndirnar bera með sér. Myndavélin fékk að vísu ofbirtu í augun og breytti um lit. Gretar Grímson var fararsjóri og myndasmiður var Frímann Guðmundsson29 Myndir
3.apr.2008 -
Hlíðarfjall-Þelamörk 8. mars 08
Fararstjóri og myndasmiður var Frímann Guðmundsson.12 Myndir
15.mar.2008 -
Vaðlaheiði 1. mars 08
Fararstjóri og myndasmiður var Frímann Guðmundsson.7 Myndir
15.mar.2008 -
Hlíðarhagi
28. – 30. mars. Skíðaferð Ekið að Klaustri á Mývatnsöræfum austan Námaskarðs. Þaðan gengið norður að Eilífsvötnum og gist í Hlíðarhaga. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Frímann Guðmundsson tók mynirnar16 Myndir
4.mar.2008 -
Myndir úr ferð á Súlur 23. feb. 08
Laugardaginn 23. sl. var ákveðið að ganga á Súlur. Frímann Guðmundsson tók myndirnar10 Myndir
28.feb.2008 -
Þorraferð í Botna 2008
Farið var í árlega þorrablótsferð i Botna þ. 16. febrúar 2008. Veður var frábært en snjórinn hefði mátt vera meiri. Hópurinn átti ágæta kvöldstund í Botna og var gengið til baka í Svartárkot sunnudaginn 17. feb. Þá var hláka og síðasta hluta leiðarinnar skiptust á krapapollar og hrísflákar. Allir voru þó ánægðir í ferðarlok.17 Myndir
20.feb.2008 -
Hrafnagil-Súlumýrar
9. febrúar 08 Skíðaferð Fararstjóri og myndasmiður var Frímann Guðmundsson.5 Myndir
11.feb.2008 -
8 Myndir
4.feb.2008 -
Bakkar Eyjafjarðarár
Fyrsta skíðaganga ársins 2008 hjá FFA. Ekki var farið upp á Súlumýrar eins og til stóð sökum éljagangs, en í staðinn farið inn bakka Eyjafjarðarár. Grétar Grímsson var fararstjóri og Frímann Guðmundsson tók myndirnar.9 Myndir
2.feb.2008 -
Dreki 14. okt 2007
Myndir úr vinnuferð í Dreka helgina 13. til 14. okt. 200731 Myndir
14.okt.2007 -
Tryppaskál '07
Gengið á vit óskemmtilegra atburða sem gerðust haustið 1870 þegar 26 hross hröpuðu fram af hengiflugi. Frímann Guðmundsson var fararstjóri. Myndirnar tóku Frímann,Tómas og Valtýr.35 Myndir
18.sep.2007 -
Heilagsdalur. 07
Ferð FFA á Heilagsdal, Ketildyngju og Bláfjall 17.-19. ágúst 2007. Ingvar Teitsson var fararstjóri og myndasmíður.45 Myndir
23.ágú.2007 -
Af Náttfaraslóðum
Stefán Sigurðsson tók þessar myndir í ferðinni um Náttfaraslóðir.55 Myndir
30.júl.2007 -
Flateyjarsigling 15.7.07
Siglt var til Flateyjar á Skjálfanda i mjög góðu veðri sunnudaginn 15. júlí s.l. Eikarbáturinn Knörrinn hjá Norðursiglingu á Húsavík, með skipstjórann Hörð Sigurbjarnarson, sem sá um að koma okkur tryggilega til og frá eyjunni og grillaði jafnfram dýrindis máltíð fyrir ferðalangana eftir skemmtilega gönguferð um eyjuna undir leiðsögn heimamannsins Ingvars Sveinbjörnssonar. Í alla staði frábær ferð. Roar Kvam tók myndirnar.55 Myndir
29.júl.2007 -
Fjólubúð
Sunnudaginn 8. júlí 2007 var ný Fjólubúð vígð við Drekagil. Fjölmenni var og blíðskapar veður á fjöllum. Myndir tók Ingimar Árnason20 Myndir
9.júl.2007 -
Austurgil
Laugardaginn 7. júlí var farið gönguferð til að skoða eyðibýli á Mývatnsheiði og Austurgil. Ingvar Teitsson var fararstjóri. Roar Kvam tók myndirnar.59 Myndir
8.júl.2007 -
Sumarsólstöður á Kræðufelli
Hér eru myndirnar sem Friðfinnur Gísli Skúlason tók í Sólstöðugöngunni 21. júní s.l. Roar Kvam var fararstjóri.26 Myndir
24.jún.2007 -
Vinnuferð í Dreka
Vinnuferð í Dreka um Hvítasunnuna 25.-28. maí 200732 Myndir
30.maí.2007 -
Draflastaðafjall_07
Myndir úr skíðaferð á Draflastaðafjalli 28. apríl 2007. Fararstjóri var Gunnar Halldórsson. Myndasmiður var Frímann Guðmundsson.19 Myndir
9.maí.2007 -
Súlur 07
Myndir úr hinni árlegu ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar Súlur. Kári Árnason var fararstjóri. Frímann Guðmundsson o.fl. tóku myndirnar.23 Myndir
5.maí.2007 -
Laugafell 07
Myndir úr skíðaferð í Laugafell í apríl 2007. Myndasmiður, söguritari og fararstjóri var Frímann Guðmundsson.23 Myndir
4.maí.2007 -
Karlsárdalur
Laugardaginn 14. apríl var farið skíðaferð í Hólsdal/Karlsárdal. Grétar Grímsson var fararstjóri. Frímann Guðmundsson tók myndirnar.14 Myndir
1.maí.2007 -
Reykjaheiði
Sunnudaginn 4. mars var farið skíðaferð á Reykjaheiði. Ingvar Teitsson var fararstjóri. Frímann Guðmundsson tók myndirnar.7 Myndir
7.apr.2007 -
Þorrablót í Botna 24.-25. febrúar 2007
Helgina 24. - 25. febrúar var farið hin árlega Þorraferð í Suðurárbotna. Ingvar Teitsson var fararstjóri. Frímann Guðmundsson tók myndirnar.20 Myndir
11.mar.2007 -
Dreki janúar 2007
Vinnuferð í Dreka 26.-27. janúar 200759 Myndir
28.jan.2007 -
Varðarhús flutt í Dreka
Helgina 15. til 17. september 2006 var nýrr varðarhúsið flutt í Dreka29 Myndir
17.sep.2006 -
Öskjuvegurinn: Myndir frá Frodo Bosman
Frá Öskjuveginum í ágúst 200628 Myndir
6.sep.2006 -
Blámannshattur 2006
Á Jónsmessu var gengið á Blámannshatt undir fararstjórn Konráðs Gunnarssonar sem sendi okkur þessar myndir.12 Myndir
1.sep.2006 -
Tunguheiði: Fleiri myndir
Roar Kvam tók myndirnar.36 Myndir
31.ágú.2006 -
Tunguheiði ágúst 2006
Fararstjóri var Sigurgeir Sigurðsson og tók hann myndirnar.13 Myndir
31.ágú.2006 -
Herðubreið-Nautagil-Drekagil
Helga Guðnadóttir kom færandi hendi með myndir sem teknar voru 29.júlí sl. af göngu á Herðubreið, í Drekagil og Nautagil.30 Myndir
30.ágú.2006 -
Herðubreið: Fleiri myndir
Við fengum sendar myndir frá Anne Laure Mansion og vinkonu hennar sem gengu á Herðubreið undir fararstjórn Ingvars Teitssonar.8 Myndir
30.ágú.2006 -
Vesturárdalsleið: Fleiri myndir
Ingvar Garðarsson sendi okkur myndir úr ferðinni.11 Myndir
30.ágú.2006 -
19.ágúst: Vesturárdalsleið
Undir fararstjórn Unu Sigurðardóttur fóru sjö vaskir göngumenn að Stekkjarhúsum í Skíðadal og gengu upp Vesturárdal, á fjallið Ingjald og ofaní Kolbeinsdal í Skagafirði í alveg frábæru veðri. Sjón er sögu ríkari. Myndirnar tók Una.35 Myndir
21.ágú.2006 -
Jeppaferð 11-13.ágúst 2006
Keyrt var í Laugafell á föstudegi og á laugardag var farin Gæsavatnaleið og gist í Dreka um kvöldið. Fararstjóri var Björn Magnússon og myndirnar tók Jakob Kárason29 Myndir
17.ágú.2006 -
Kerling 12.ágúst 2006
Vaskur hópur karla og kvenna gekk á Kerlingu undir fararstjórn Frímanns Guðmundssonar í forföllum Vignis Víkingssonar. Þau hrepptu fínasta veður og gott útsýni af toppnum þótt ekki liti það vel út fyrst um morguninn. Um helmingur hópsins gekk síðan sömu leið til baka en hinir gengu fjallgarðinn áfram norður af og nefndi Ludvig Kári þessa ferð 7 tinda gönguna. Myndirnar tók Stefán Sigurðsson.36 Myndir
15.ágú.2006 -
Herðubreið um verslunarmannahelgina
Um 20 manna hópur gekk á Herðubreið 5.ágúst sl. og var Ingvar Teitsson fararstjóri. Velheppnuð ferð þrátt fyrir þoku á toppnum, myndirnar tók Stefán Sigurðsson.32 Myndir
11.ágú.2006 -
Öskjuvegurinn 29.júlí-4.ágúst 2006.
Lögðum af stað frá FFA kl. 16. Í Mývatnssveit var hefðbundið stopp og síðan ekið útaf þjóðvegi við Hrossaborg60 Myndir
9.ágú.2006 -
Mælifellshnjúkur 8. júli '06
Myndir frá ferð á Mælifellshnjúk 8. júli 2006 Frímann Guðmundsson og Roar Kvam voru fararstjórar í forföllum Böðvars Finnbogasonar. Var þetta hin besta ferð, nema hvað þokan var að angra okkur þegar á toppinn var komið. Frábær útivera samt sem áður. Roar tók myndirnar.35 Myndir
7.ágú.2006 -
Látraströnd -Fjörður 14.-16.júlí
Fararstjóri var Helga Guðnadóttir en myndasmiður var Tryggvi Már Ingvarsson.57 Myndir
26.júl.2006 -
Þverbrekkuhnjúkur
Gengið var á Þverbrekkuhnjúk 22.júlí sl. Ekið var að Hálsi í Öxnadal og þaðan gengið um Vatnsdal á hnjúkinn. Síðan um Bessahlaðaskarð og Beitarhúsagil að Hálsi þar sem göngunni lauk.50 Myndir
25.júl.2006 -
Hvanndalabjarg
Helga Guðnadóttir fararstjóri leiddi hópinn, Gunnar Tryggvason tók myndirnar.24 Myndir
18.júl.2006 -
YstuVíkurfjall
Á sumarsólstöðum gekk vaskur hópur frá Víkurskarði í Gæsadal og þaðan upp á YstuVíkurfjall. Helga Kvam tók myndirnar.10 Myndir
17.júl.2006 -
Skiðaferð Krafla - Mývatnssveit
Frábær skiðaferð sem farin var 23. apríl s.l. Nokkuð hvasst var, en sólin yljaði okkur þannig að þetta var bara topp útivera. Það var sæmilegt skiðafæri, en rennslið mátti vera betra. Ekki skemmdi að gangan endaði í jarðböðunum í sveitinni. Ég væri til í að fara þessa ferð aftur. Roar Kvam34 Myndir
18.jún.2006 -
Garðsárdalur
Gönguferð í Garðsárdal/Gönguskarð sumarið 2005.
Roar Kvam tók myndirnar.48 Myndir
2.jún.2006 -
Myndir frá Frímanni Guðmundsyni
Frímann sendi inn nokkrar myndir sem hann hefur tekið nýverið, úr ferð á Súlur og úr skíðaferð á Kröflusvæðið15 Myndir
8.maí.2006 -
Skíðastaðir-Þelamörk
Laugardaginn 1. apríl 2006 var farin skíðaferð frá Skíðastöðum í Hlíðarfjalli yfir að Laugarlandi á Þelamörk. Frímann Guðmundsson var einn þátttakenda og tók hann meðfl. myndir.8 Myndir
4.apr.2006 -
Skíðaferð, mars 2006
Helgina 11-12 mars 2006 var farin skíðaferð frá Kröflu til Húsavíkur um Reykjaheiði og var gist á Þeistareykjum eina nótt. Frímann Guðmundsson var fararstjóri og sendi hann myndir og ferðasögu frá ferðinni sem tókst í alla staði mjög vel49 Myndir
22.mar.2006 -
Nýtt skálavarðarhús
Hafin er bygging nýs skálavarðarhús sem sett verður upp við Dreka sumarið 2006. Unnið er við bygginguna alla laugadaga15 Myndir
21.mar.2006 -
Við Kaldbak, mars 2006
4. mars 2006 var fyrsta ferð ársins á dagskrá og var farin skíðaferð í nágrenni við Kaldbak12 Myndir
16.mar.2006 -
Dreki sumarið 2004
Bygging nýja Dreka sumarið 200427 Myndir
17.feb.2006 -
Dreki janúar 2006
Vinnuferð í Dreka 27.-29. janúar 200650 Myndir
30.jan.2006 -
45 Myndir
25.okt.2005 -
Öskjuvegurinn 2005
Myndir úr ferð félagsins um Öskjuveginn sumarið 200510 Myndir
5.sep.2005 -
6 Myndir
12.júl.2005 -
9 Myndir
13.maí.2005 -
Bíldsárskarð
Myndir úr skíðaferð yfir Bíldsárskarð í apríl 200511 Myndir
12.maí.2005 -
Skíðaferð
Myndir úr skíðaferð í Laugafell í apríl 200432 Myndir
12.maí.2005 -
0 Myndir
1.jan.1970 -
0 Myndir
1.jan.1970 -
0 Myndir
1.jan.1970 -
0 Myndir
1.jan.1970
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni


